Kökur fyrir sérstök tilefni
Sandholt útbýr sérlagaðar afmæliskökur. Einnig er hægt að skrifa á og skreyta þær tertur sem til eru hverju sinni.
Sandholt útbýr sérlagaðar afmæliskökur. Einnig er hægt að skrifa á og skreyta þær tertur sem til eru hverju sinni.
Skírnartertur er hægt að panta hjá Sandholt. Ræðið við bakarann okkar um ykkar hugmyndir og bragðtegundir sem eru efst á óskalistanum.
Smárétta tilboð 1:
5 einingar á mann
Kjúklingaspjót
Hrísgrjónabollur fylltar með osti
Snittur með eggjasalati og laxi
Snittur með tómötum, mozzarella og pestó
Mini borgari með pulled pork, rauðkáli og heimalagaðri bbq sósu
1.850,-/á mann
Lágmarksfjöldi, 25 manns.
______________________
Smárétta tilboð 2:
8 einingar á mann
Kjúklingaspjót
Hrísgrjónabollur fylltar með osti
Snittur með eggjasalati og laxi
Snittur með hráskinku og parmesan
Snittur með tómötum, mozzarella og pesó
Mini borgari með pulled pork, rauðkáli og heimalagaðri bbq sósu
Kjötbollur
Djúpsteikar tígrisrækjur
2.650,-/á mann
Lágmarksfjöldi, 25 manns.
Hjá Sandholt er löng hefð fyrir því að baka brúðartertur. Þegar panta á eina slíka er best að gefa sér tíma til að hitta bakarann okkar, fá að smakka þær bragðtegundir sem verðandi brúðhjón hafa mestan áhuga á og ræða síðan útlit tertunnar og aðrar óskir. Gott er að byrja á því að hringja og athuga hvort dagsetning henti fyrir bakarann og að panta tíma fyrir smökkunina.
Við tökum að okkur að sjá um veitingar fyrir allar veislur. Við lögum tertur, kökur og margar tegundir af eftirréttum. Snittur og pinnamat er einnig hægt að fá hjá okkur. Það er mikilvægt að hringja og panta tíma með bakaranum til að komast að niðurstöðu um besta veislukostinn.