Sagan

Sandholt er fjölskyldubakarí sem byggir á
áratuga langri hefð.

Sandholt bakarí hefur verið opnað frá 1920

STEFNA/HUGMYNDAFRÆÐI

Við erum ekki smeyk við að fara út fyrir ramma hins hefðbundna íslenska bakarís og þróa nýjungar í brauðgerð. Sömuleiðis gerum tilraunir í ís- og konfektgerð og það kann líka að koma á óvart að við leggjum mikinn metnað í öðruvísi pinnamat  og annarskonar veislukost.


Við höfum langa sögu og hefð bakarísins að leiðarljósi. Við leitum aftur í fortíðina að innblæstri fyrir uppskriftum að nýju góðgæti, hvort sem það eru brauð, sætindi eða annar matur. Við prófum okkur áfram og leitumst stöðugt við að finna leiðir til að koma okkar viðskiptavinum skemmtilega á óvart með hefðbundnum og gömlum handverksaðferðum. Okkur finnst gaman að feta nýjar leiðir í bakarís- og matarmenningu og við gerum það vegna þess að við höfum ástríðu fyrir góðum og gómsætum mat og viljum deila því með öðrum. Stefna Sandholts er meðal annars, líkt og flestir veitingastaðir, að  endurnýja reglulega framboð okkar í bakaríinu og smáréttamatseðla

Sagan

Sandholt er fjölskyldubakarí sem byggir á áratuga langri hefð. Fjórða kynslóð bakarameistara Sandholts býður viðskiptavinum sínum upp á áhugaverðar nýjungar úr einu elsta starfandi bakaríi landsins sem hóf störf 1920.  Framboðið á mismunandi tegundum af brauði og kökum er síbreytilegt og sækist bakarameistarinn Ásgeir Sandholt stöðugt eftir spennandi nýjungum sem byggja á handverkshefð fjölskyldunnar. Í Sandholt grúskum við í gömlum uppskriftum og leitum að uppruna brauð- og kökugerðar og reynum að finna nýjan flöt á gömlu hefðunum.

Bakarahandverk eins og við stundum er mikil kúnst. Að okkar mati er ekki nóg að fylgja gömlum uppskriftum í blindni. Við leggjum mikla vinnu í okkar afurðir og við leggjum hugsun og alúð í vinnuna.

Ásgeir Sandholt, Pastry Chef, baker

Heimspeki okkar


frá uppskeru til borðs

FERSKT HRÁEFNI


Við notum fersk egg og ekta smjör og vinnum vörur okkar frá grunni

HEIMALAGAÐ


Það er okkar stefna að stytta okkur aldrei leið á kostnað gæða. Allar okkar vörur eru unnar frá grunni, við lögum sulturnar okkar sjálf og vanillukremið í sérbökuðu vínarbrauðunum okkar er ekki fengið með því að hræra vatni út í duft úr pakka. Það er það sem felst í handverki.

Hágæða Vörur


Uppskriftirnar okkar eru ekkert leyndarmál enda felast gæðin ekki einvörðungu í þeim, þau felast í góðu hráefni og handverkinu. Og já, smjörlíki er bannorð í Sandholtsbakaríi.

Ásgeir Sandholt

Ásgeir Sandholt fæddist í Reykjavík árið 1976. Hann er frá 4. kynslóð bakaranna í Sandholt bakaríi; hefðbundið, handunnið, gæðastaðið, fjölskyldufyrirtæki þar sem hann hefur verið að vinna síðan hann var ungur drengur.

Hringdu í okkur núna +354 551 3524

Unnið í samstarfi við Reykjavík Marketing