Á Laugavegi 36 er starfrækt verðlaunað, reyklaust og nýtískulegt kaffihús byggt á gömlum merg í húsi sem hýst hefur starfsemi fyrirtækisins frá upphafi. Það var opnað árið 2000 í nýjum búningi.
Hér er gott að koma við í amstri dagsins og bragða á einhverju af þeim fjölbreytilegu réttum sem í boði eru. Boðið er upp á brauð, tertur, súkkulaði, súpur, bökur og ýmislegt fleira.
Tekið er við litlum hópum (8-12 manns) í léttan rétt með sætum á sanngjörnu verði í félagsskap meistarans. Matseðillin er alltaf eitthvað frumlegt og óvænt. Boðið hefur verið upp á ferskan hörpudisk borinn fram með steiktu engifermangó og súkkulaðisósu. Einnig Ítalskt "Bruscetta" hlaðborð.
Hér er opið alla daga frá kl. 7:30 til 18:15 (17:00 um helgar). Við tökum vel á móti ykkur.